Hvammstangabraut 13A, 530 Hvammstangi
35.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
122 m2
35.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1966
Brunabótamat
51.900.000
Fasteignamat
18.900.000

Domus fasteignasala kynnir vel skipulagða íbúð á Hvammstanga.

Eignin er Hvammstangabraut 13A, sem er steinsteypt 122,9 fm íbúð í fjöleignarhúsi frá árinu 1966.
Íbúðin er á annari  hæð í húsinu og býður upp á mjög fallegt útsýni. 

Búið er að endurnýja glugga í íbúðinni. 

Nánari lýsing:

Forstofan er stór og björt með hvítum skóskáp og flísum á gólfi. Stigi með rauðu teppi liggur svo úr forstofu upp á aðra hæð þar sem íbúðin er.
Gangur er með rauðu teppi á gólfi og þaðan er gengið inn í þvottahús annars vegar og geymslu hins vegar og eru bæði þessi rými á ganginum fyrir utan íbúðina. 
Baðherbergi er með hvítri innréttingu, dúk á gólfi og baðkar með sturtu í.
Svefnherbergi I er með parket á gólfi, hvítum stórum fataskáp og stórum glugga með miklu útsýni.
Svefnherbergi II er með dúk á gólfi.
Stofan er rúmgóð með dúk á gólfi og stórum glugga með miklu útsýni. 
Geymsla fyrir utan íbúð frammi á gangi. 
Þvottahús er fyrir utan íbúð frammi á gangi. Það er með dúk á gólfi og stiga upp á háaloft.

Vel skipulögð íbúð á góðum stað í bænum og stutt í alla þjónustu. Eign sem vert er að skoða.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected] 
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.